Valmynd

Reykir

Reykir eru í Mosfellsbæ. Þar rekur Jón Magnús Jónsson fyrirtækið Reykjabúið ehf. Á Reykjum hefur verið stunduð kjúklingarækt síðan 1962 og svo kalkúnarækt frá 1965. Reykjabúið er eina bú landsins sem framleiðir kalkúna. Á Reykjum er einnig holdastofn fyrir alla Ísfuglsbændurna, sem er í eigu Útungunar ehf (Ísfugl 50%, Reykjabúið 50%). Kjúklinga- og kalkúnaræktunin fer fram á sjö stöðum þ.e. Bakka, Lambhaga og Hjalla sem eru allir í Ölfusi, Sætúni sem er á Kjalarnesi, Helludal í Biskupstungum, við Sjávargötu í Sandgerði og svo á sjálfu Reykjabúinu Í Mosfellsbæ. Myndin hér að ofan sýnir heim að Reykjum. Reykjabúið er hluthafi í Ísfugli ehf

 

reykjabuid@kalkunn.is

Tilboð!!

Vefumsjón