miðvikudagurinn 5. mars 2008
Gífurlegar kostnaðarhækkanir
Gífurlegar kostnaðarhækkanir hafa orðið á síðustu mánuðum og
misserum. Fóður hefur td hækkað um 60% á stuttum tíma, launakostnaður
hefur aukist töluvert og þannig hefur verið með nánast öll önnur
aðföng. Fjármagnskostnaður hefur stóraukist eins og kunnugt er og
spilar hann töluvert inn í þennan rekstur.
Við höfum reynt að halda verðhækkunum á vörum okkar í lágmarki en fyrirsjáanlegt er að einhver hækkun er nauðsynleg ef ekki gerist eitthvað mikið til lækkunar á kostnaði. Við teljum okkur hafa hagrætt í rekstrinum eins kostur er og þar verði ekki mikið hægt að gera.
Landbúnaðarráðherra hefur nú sagt að hann muni fella endanlega niður fóðurskattinn sem hefur íþyngt okkur árum saman og er það vel en kannski svolítið seint. Hann engu skilað nema hærra verði til neytenda og tekjum í ríkissjóð. Skatturinn var settur á að sögn til að vernda íslenskan fóðuriðnað en síðan hann var tekinn upp fyrir áratugum, hafa allar graskögglaverksmiðjur í landinu hætt framleiðslu en aðal tilgangurinn var að vernda þær fyrir ódýru erlendu fóðri ef rétt er skilið. En okkur hefur fundist hann frekar hafa verið settur á til að hækka verð á svína og kjúklingakjöti, en fóður er stærsti einstaki liðurinn í framleiðslu þessara matvara.