Valmynd

Gæðastefna

Stjórnendur fyrirtækisins hafa skilgreint hlutverk fyrirtækisins, markað því stefnu og sett því markmið.

Það er stefna Ísfugls ehf. að framleiðsla og þjónusta fyritækisins uppfylli ávallt kröfur viðskiptavina og að fyrirtækið skili ávallt þeim gæðum sem óskað er eftir.

Fyrirtækið leitast við að vera í fararbroddi hvað gæðamál varðar. Fyrirtækið notar aðferðir GÁMES / HACCP kerfisins við innra eftirlit framleiðslunnar.

Það er stefna fyrirtækisins að uppfylla ávallt kröfur hins opinbera sem gilda um rekstur fyrirtækja.

Framkvæmdarstjóri Ísfugls ehf. sér til þess að allir starfsmenn fyrirtækisins þekki og skilji gæðastefnuna og hafi hana að leiðarljósi í starfi sínu.

Markmið:
  • Að afhenda ávallt umsamin gæði án frábrigða eða galla.

  • Að afhenda viðskiptavinum vöruna á umsömdum tíma í öllum tilvikum.

  • Að vörur fyrirtækisins standi í augum fólks sem gæðavara.

  • Að allir fuglar sem að er slátrað og pakkað hjá fyrirtækinu séu merktir rekjanleikanúmeri sem gefur til kynna framleiðsludag, framleiðandanúmer og framleiðsluár.

  • Að beita forvörnum til varnar því að frábrigðavara fari á markað.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á innri gæðaúttektir og álítur að þær séu undirstaða gæðakerfissins. Gengið er úr skugga um að verklagsreglum kerfisins sé fylgt, en þar er lýst hvernig staðið skuli að innri úttekt.

Fyrirtækið hefur þá stefnu að starfsmenn fyrirtækisins séu ávallt vel þjálfaðir og meðvitaðir um hreinlætisreglur og sýklavarnir.

Fulltrúi Yfirdýralæknisembættisins kemur daglega í fyrirtækið, tekur sýni af framleiðslunni og athugar hvort að reglum hins opinbera sé fylgt eftir.

Ísfugl ehf. tók upp þá nýbreytni í lok árs 1999 að senda út vottorð frá Keldum (Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði) með allri ferskvöru. Nokkrum mánuðum seinna var öðrum kjúklingaframleiðendum skylt að gera slíkt hið sama. Vottorð þetta gefur til kynna niðurstöðu úr sýnatöku sem gerð er þegar að fuglinn er enn í eldishúsi. Kemur þá fram að varan er ekki Campylobacter- eða Salmonellasýkt (sýnishorn af vottorði).

Gæðastjóri Ísfugls notar Uni-lite þrifamæli daglega til þess að gera ítarlega úttekt á þrifum í slátursal og kjötvinnslu. Við þrifin vinna menn með margra ára reynslu og þekkingu á þeim hreinsiefnum sem notuð eru.

Tilboð!!

Vefumsjón