Heiðarbær
Heiðarbær er í Þingvallasveit. Þar búa Jóhannes Sveinbjörnsson og Ólöf
Björg Einarsdóttir með sauðfé, kjúklinga og hesta. Kjúklingarnir eru í
einu eldishúsi sem rúmar 3000 fugla. Á Heiðarbæ hafa verið ræktaðir
kjúklingar síðan 1978, lengst af á vegum Sveinbjörns Jóhannessonar og
Steinunnar Guðmundsdóttur sem enn búa á Heiðarbæ og stunda veiðiskap í
Þingvallavatni.
