Valmynd

Kjúklingakjöt og eldun

Kjúklingar eru það kjötmeti sem mest er borðað í hinum vestræna heimi og þó víðar væri leitað. Þetta stafar ekki eingöngu af því hversu ódýr kjúklingurinn er heldur einnig af því hve einfalt er að elda hann. Mjög auðvelt er að búa til ljúffenga máltíð úr kjúklingakjöti á skömmum tíma, sem allir í fjölskyldunni borða, njóta og þá ekki síst börnin. Kjúklingakjöt er magurt kjöt og hentar því vel fyrir þá sem eru í "aðhaldi" hvað fæðu varðar.

Þegar fuglakjöt er eldað er mjög mikilvægt að gæta hreinlætis. Vökvi úr fuglakjötinu má aldrei snerta aðra ferska matvöru s.s. grænmeti.

Við eldun á kjúklingnum ber að hafa í huga að hitinn sé ekki of hár því þá er hætt við að kjötið verði of þurrt. Mátulegur hiti er ca. 170° og svo má hækka hitann í lok steikingatímans til að fá fallegan lit á kjúklinginn. Steikingatími er misjafn og fer alveg eftir því hvort kjúklingurinn er heill, í bitum eða jafnvel úrbeinaður. Þumalputtareglan er 45 mín - 1 klst. á hvert kíló. Sígilt ráð er að ausa af og til soði á kjúklinginn þegar hann er inn í ofni. Það góða við kjúklingakjöt er að það þornar ekki við langa eldun, ef það er í góðu soði, það verður bara mýkra með hverri mínútunni. Þess vegna finnst svo mörgum gott að láta kjúklinginn vera frekar lengur en skemur í ofninum.

Þegar kjúklingur er grillaður er best að brúna kjúklinginn fyrst á grillinu og snúa oft á meðan, en færa síðan ofar í grillið og láta kjötið "malla" þar í u.þ.b. 30 mín. eða þar til kjötið er gegnsteikt. Líka er hægt að fá grinda-samloku sem hægt er að raða í bitum og snúa þá öllum bitunum í einu. Einnig má grilla í til þess gerðum álbökkum.

Tilboð!!

Vefumsjón