Kjúklingur í laukbaði (fyrir 4-5)

  • Heill kjúklingur
  • 0 Comments

Hráefni

1 stór kjúklingur
1 laukur
1 rauðlaukur
1 hvítlaukur
1 blaðlaukur
5 gulrætur
5-7 meðalstórar kartöflur
salt og pipar

Aðferð

    • Kjúklingurinn settur í lokað fat eða ofnpott og kryddaður með salti og pipar.
    • Allur laukurinn skorinn í sneiðar, gulræturnar þvegnar og skornar í bita.
    • Kartöflurnar þvegnar, skornar í 2-4 bita og kryddaðar með salti og pipar.
    • Allt sett í fatið með kjúklingnum og bakað í 1 klst. við 200°C.
    • Þegar kjúklingurinn er tilbúinn eru kartöflurnar veiddar upp úr, saltaðar/kryddaðar og settar í skál, kjúklingurinn settur á fat, laukur og gulrætur blandað vel saman í matvinnsluvél.
    • Öllu hellt í pott með u.þ.b. 250 ml af vatni, hitað upp og notað sem sósa á kjúklinginn. Kryddað ef þurfa þykir.
0 Comments