MATREIÐSLA OG STEIKINGARTÍMI KJÚKLINGAKJÖTS

_DSC2369-EditÍ dagsins önn er gott að elda mat sem er hollur og þarf stuttan eldunartíma. Steikingartími kjúklingakjöts er mismunandi og fer alfarið eftir því hvort kjúklingurinn er heill, í bitum eða úrbeinaður, eða hvort kjötið er notað í rétti þar sem mikið er af öðru hráefni. Alltaf skal gegnsteikja kjúklingakjöt, en muna að kjúklingabringur eru magurt kjöt og geta því þornað við of langa steikingu eða á grilli þegar þær eru ekki eldaðar í vökva. Gott er að nota kjöthitamæli við eldun, því ofnar geta verið misjafnir. Miðað er við að kjötið sé gegnsteikt við 70°C kjarnhita.

Mjög mikilvægt er að gæta hreinlætis þegar fuglakjöt er eldað. Vökvi úr kjötinu má aldrei snerta grænmeti eða aðra ferska matvöru.

Við eldun á heilum kjúklingi ber að hafa í huga að hitinn sé ekki of hár, því þá er hætt við að kjötið verði of þurrt. Mátulegur hiti er um 170°C og svo má hækka hitann í lok steikingartímans til að fá fallegan lit á kjúklinginn. Þumalputtareglan er 45-60 mínútur á hvert kíló við 170°C. Sígilt ráð er að ausa af og til soði á kjúklinginn á meðan hann er eldaður. Stórir kjúklingar þola lengri steikingartíma, því þá er meiri fita í kjötinu sem gerir þá mjúka og safaríka. Ef kjúklingurinn er fylltur þarf  hann aðeins lengri tíma.

Þegar kjúklingur er grillaður er best að brúna hann fyrst á grillinu og snúa oft á meðan, en færa síðan ofar í grillið og láta kjötið „malla“ þar í um 30 mín. eða þar til það er gegnsteikt.

Úrbeinaðar bringur eru magurt kjöt og þurfa þær því aðeins styttri steikingartíma.  Oftast er steikingartími á kjúklingaréttum með bringum í ofni u.þ.b. 25-30 mín. við 170°C.  Ef bringa er brúnuð á pönnu er gott að lækka hitann og klára eldun í um 20 mín., eða setja í eldfast mót í ofn  í jafnlangan tíma. Best er að grilla kjúklingabringur við meðalhita í um 20 mín.

Læri og leggir þurfa aðeins lengri eldunartíma.