Valmynd

Um Ísfugl ehf.

Ísfugl ehf. rekur sláturhús, kjötvinnslu og dreifingarstöð fyrir afurðir alifugla. Í sláturhúsinu er slátrað kjúklingum, kalkúnum og unghænum allan ársins hring. Mikil aukning hefur verið á framleiðslu undanfarin ár vegna vaxandi eftirspurnar á fuglakjöti, og þá sérstaklega fersku.

Núverandi hluthafar Ísfugls eru Markís ehf. sem á 70% og Sláturfélag Suðurlands sem á 30% hlut. Eigendur Markís ehf. eru:  Hvammur ehf, Logi Jónsson, Rafn Haraldsson og Reykjabúið ehf. Sláturhúsið að Reykjavegi 36, þar sem Ísfugl er með starfsemi sína var byggt 1978, hóf starfsemi 1979 og hefur verið í rekstri óslitið síðan.

Vörumerkið Ísfugl hefur ætíð verið notað þó rekstraraðilarnir á sláturhúsinu hafi verið þrír í gegnum tíðina. Fyrstir voru það Hreiður frá 1979 til 1987 og þá tóku Markaðskjúklingar ehf við. Það félag tók síðar upp nafn vörumerkisins eða 1999 og heitir nú Ísfugl ehf.

Tilboð!!

Vefumsjón