Valmynd

Austurlenskur kalkúni með salthnetum

Hráefni
500 gr kalkúnabringur skornar í 1 - 1 ½ sm strimla
2 bollar sellerí skorið í bita
1 stór rauð paprika skorin í strimla
1 hvítlauksgeiri, saxaður mjög smátt
2 msk matarolía
½ bolli salat dressing
3 msk hnetusmjör
1 msk sojasósa
½ tsk engifer
2 msk salthnetur, skornar í bita
3 bollar kál, rifið niður

Matreiðsla
Látið malla í 3 - 4 mínútur í potti við meðalháan hita, sellerí, papriku og hvítlauk í 1 msk af olíunni. Takið grænmetið af pönnunni og setjið afganginn af olíunni og brúnið kalkúnastrimlana þangað til þeir eru farnir að dökkna og harðna aðeins (5 mínútur) Takið pönnuna af hellunni og bætið grænmetinu á hana. Blandið saman í skál salat dressing, hnetusmjöri, sojasósu og engifer. Hellið þessu svo á pönnuna saman við kalkúninn og grænmetið. (ekki setja pönnuna á hita aftur)

Berið fram á diskum ofan á salatblöðin og stráið salthnetum yfir.

Tilboð!!

Vefumsjón