Valmynd

Fljótlegar kalkúnalundir með hvítlauk

Hráefni
500 gr. Kalkúnalundir (eða beinlaus skinnlaus bringa skorin í 4 sm þykka bita)
3 msk olífuolía
5 hvítlauksgeirar , marðir án híðis
½ tsk salt
½ tsk svartur pipar
½ bolli fersk steinselja
½ lime ávöxtur (safinn)

Hvítlauks-steiktar sætar kartöflur
4 sætar kartöflur, skrældar og skornar í 2 sm. kubba
1 rauð paprika skorin í strimla
1 msk olífuolía
5 hvítlauksgeirar, pressaðir
½ tsk salt
½ svartur pipar
½ lime ávöxtur


Matreiðsla
Lundirnar
Hitið bakarofninn í 200°.
Setjið lundirnar í eldfast mót og bleytið í þeim með olífuolíunni.
Stráið yfir hvítlauk, salti og pipar. (ágætt að hafa bökunarpappír í eldfasta mótinu)
Setjið lok eða álpappír yfir og steikið í 20 mínútur.
Takið lokið/álpappírinn af, stráið steinselju yfir og steikið í 10 mínútur til viðbótar.
Skvettið lime safanum yfir.

Kartöflurnar
Hitið ofninn í 200°
Blandið saman kartöflukubbunum, paprikunni og olífuolíunni í stóra skál og hrærið saman lauslega svo að kartöflurnar og paprikan sé vel blaut.
Bætið hvítlauknum við, og stráið salti og pipar yfir allt saman og hrærið lítillega.
Setjið í eldfastmót með bökunarpappír undir,(ekkert lok) og bakið í 45 mínútur, eða þangað til tilbúið.
Slettið lime safanum yfir.

Tilboð!!

Vefumsjón