Fyllt kalkúnalæri með sveppasósu
750 gr kalkúnalæri, úrbeinuð og skinnlaus
1/3 bolli þurrkaðar apríkósur, skornar í bita
2 msk rúsínur, skornar í bita
1 lítill hvítlauksgeiri, saxaður mjög smátt
¼ bolli grænn laukur, smátt saxaður
½ bolli sellerí, smátt saxað
2/3 bolli ristaðir brauðteningar
Rjómaleg sveppasósa:
1 tsk sósujafnari
1/3 bolli kjúklingakraftur
1 ½ tsk sinnep
1 ½ tsk hunang
1 tsk sítrónusafi
3 msk majónes (allt í lagi að nota kolestrólskert líka)
Forhitið ofninn í 160°. Setjið apríkósurnar og rúsínurnar í skál sem má fara í örbylgjuofn, og hellið heitu vatni yfir.
Setjið í örbylgjuofn á háan hita í u.þ.b. 1 ½ mínútu eða þangað til að ávextirnir eru orðnir mjúkir.
Takið út og látið vökvann leka vel af.Bætið út í hvítlauk, lauk, sellerí og brauðmolum.
Setjið plastfilmu sem er búið að gata yfir skálina og látið aftur í örbylgjuofninn á háan hita í 1 ½ mínútu eða þangað til laukurinn og selleríð er orðið meyrt. Leggið til hliðar.
Fletjið kalkúnalærin með því að setja smjörpappír ofan á og undir þau og berja (ekki fast) með fínni hliðinn á buffhamri, þangað til þau eru orðin u.þ.b. 2 sm á þykkt.
Skiptið fyllingunni niður á lærin og setjið á þau*
Setjið í lítillega smurt eldfast mót og steikið í ofninum í 1 ½ - 1 ¾ klst. ( ef notaður er kjöthitamælir á hann að sýna 80° hita þegar þau eru tilbúin)
*Setjið fyllinguna á lærin og brjótið þau saman (eins og samloku) bindið þau með rúllupylsugarni í einskonar rúllu og látið samskeyti snúa niður í steikingunni.
Sveppasósan:
Hrærið saman í potti yfir meðalhita sósujafnara, kjúklingasoði, sinnepi, hunangi og sítrónusafa. Látið malla og hrærið þangað til sósan þykknar.
Takið pottinn af hellunni og hrærið majónesinu í.
Takið bandið af lærunum, skerið lærin niður í bita og berið fram með sósunni,kartöflum eða hrísgrjónum og fersku salati.