Kaldir BBQ kalkúnavængir
1 kg kalkúnavængir, skornir í sundur
1 dós (8 oz ) tómatssósa
1 dós (8 oz) ananashríngir, geymið safann
1 msk púðursykur
2 tsk chilli duft
¼ tsk malað engifer
¼ tsk hvítlauksduft
¼ tsk pipar
Raðið kalkúnavængjunum í smurða ofnskúffu eða eldfast mót.
Steikið í 220° heitum ofni í 20 - 25 mínútur eða þangað til vængirnir eru orðnir ljósbrúnir.
Lækkið hitann á ofninum niður í 160°.
Blandið saman á meðalheitri pönnu, tómatssósunni, ananassafanum, púðursykrinum chilli duftinu, engifer, hvítlauksdufti og pipar.
Hitið upp að suðu. Takið pönnuna af og hellið blöndunni yfir vængina í ofninum, passið að það fari yfir þá alla.
Setjið álpappír yfir mótið og eldið í 45 - 60 mínútur* Takið álpappírinn af og bætið ananashringjunum ofan á. Bakið án álpappírs í 15 mínútur í viðbót. Kælið niður og berið fram kalda.
*Gott er að stinga í vængina með gaffli til að finna ef þeir eru tilbúnir. Gaffallinn á að renna auðveldlega inn í kjötið.