Valmynd

Kalkúna trommukjuðar með heimagerðri Picode Gallo salsasósu

Þessi uppskrift er ætluð fyrir 4

Hráefni
1250 gr kalkúnaleggir
8 ferskir maísstönglar, skipt í tvennt
2 msk malaður koriander
1 tsk svartur pipar
¾ tsk salt

Picode Gallo Salsa sósa:
3 þroskaðir tómatar saxaðir
½ bolli rauðlaukur, saxaður
2 msk jalapeno pipar, fræhreinsaður, saxaður smátt
2 msk ferskur sítrónusafi
1 msk olívuolía


Matreiðsla
Stráið koríander, pipar og salti yfir kalkúninn og maísinn.
Grillið kalkúnaleggina (þurfa u.þ.b. 60 mínútur, 30 á hvorri hlið)*
Þegar hálfnað er að grilla leggina, setjið maísinn á grillið og grillið í 30 mín.
Á meðan,hrærið saman í skál öllum hráefnunum sem eiga að vera í salsasósunni og látið hana standa í 20 - 30 mínútur áður en þið berið hana fram með kalkúninum og maísnum.

*Ef þið stingið kjöthitamæli í kjötið, á það að vera 80° þar sem það er þykkast.

Tilboð!!

Vefumsjón