Valmynd

Kalkúnabringur með kryddgrjónum

600 gr kalkúnabringa
150 gr rauðlaukur
2 msk. ólífuolía
3 1/2 dl hrísgrjón
3 tsk. karrí
7 1/2 dl kjúklingasoð
200 gr fennikel
1 stór banani
1 stórt rautt epli
4 msk. Mango chutney sósa
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. salt
1 tsk. malaður pipar
2 msk. kókosmjöl


Afhýðið lauk og skerið í báta. Hitið olíu í potti og mýkið laukinn í smástund. Hrærið þá karríi og grjónum saman við og blandið vel. Bætið kjúklingasoðinu út í og sjóðið í 15 mínútur. Takið þá grjónin af hellunni og látið standa í smástund.

Hreinsið fennikel og afhýðið banana og epli. Skerið í teninga. Hrærið sítrónusafa út í Mango chutney og blandið saman við teningana.

Hitið ofn í 200° gráður. Snöggsteikið kalkúnabringurnar á teflonpönnu í 5 mínútur á hvorri hlið. Setjið í eldfast mót og bakið í 25 mínútur (fer þó aðeins eftir þykkt bringu).

Steikið teningana á sömu pönnu og hellið grjónunum saman við. Kryddið með salti og pipar. Setjið grjónin á fat og skerið bringurnar í sneiðar og raðið ofan á. Ristið kókosmjölið lítið eitt á þurri pönnu og stráið yfir réttinn.

Tilboð!!

Vefumsjón