Valmynd

Kalkúnalæri með spaghetti að ítölskum hætti

Hráefni
750 gr kalkúnalæri skorin í u.þ.b. 1 ½ sm. Þykka strimla, úrbeinið og takið skinnið af fyrst.
1 msk grænmetisolía
1 msk rauðvínsedik
1 stór hvítlauksgeiri saxaður mjög smátt
1 tsk Italian seasoning krydd
¼ tsk salt
¼ tsk pipar
1 bolli græn stór paprika brytjuð niður
2/3 bolli grænn laukur skorinn í sneiðar
½ bolly cherry tómatar(litlir tómatar) skornir í fernt
4 bollar soðið spaghetti skorið í bita


Matreiðsla
Blandið saman í skál olíu, ediki, hvítlauk, ítölsku kryddi, salti og pipar.
Setjið kalkúninn út í blönduna og látið marinerast í ísskáp í nokkra klukkutíma.
Hitið pönnu á meðalhita og setjið kjötblönduna á pönnuna og látið malla í 6 mínútur, eða þangað til að kjötið hefur brúnast aðeins.
Hrærið papriku og lauk saman við.
Lækkið hitann aðeins, setjið lokið á pönnuna og látið malla í eina mínútu.
Bætið tómötunum út í og látið malla í aðra mínútu.

Hellið yfir saltað spaghetti eftir smekk og berið fram með snittubrauði.

Tilboð!!

Vefumsjón