Kalkúnn með sveppafyllingu
4 1/2 kg Kalkún
4-5 feitar beikonsneiðar
1/2 sítróna
Salt
Brætt smjör Fylling:
2-3 dl franskbrauð
1 dl sérrí eða portvín
innyfli úr kalkún þ.e. lifur, hjarta og fóarn.
400 gr niðursoðnir sveppir
1 dl fersk steinselja
salt og pipar
Sósa:
Soð af kalkún
Sveppasoð
Vatn
2-3 kjúklingarteningar
1/2 dl sérrí eða portvín
Hveiti
Rjómi
Setjið brauðið í bleyti í sérrí eða portvín. Hakkið innyflin í matarvinnsluvél, setjið sveppi, steinselju, og brauðið í kvörnina og hakkið saman. Kryddið með salti og pipar.
Hreinsið og þerrið kalkúninn. Troðið fyllingunni inn í hann og saumið fyrir opið eða lokið með trépinnum.
Nuddið kalkúninn vel að utan með sítrónu og salti. Leggið beikonsneiðar yfir bringuna og pakkið kalkúninum inn í álpappír. Steikið í 250°C heitum ofni í tvo klukkutíma. Tekið álpappírinn og beikonsneiðarnar af, penslið kalkúninn með bræddu smjöri. Steikið áfram í 20 mínútur eða þar til að kalkúninn er fallega brúnn.
Sósa:
Heillið kalkúnasoðinu í pott ásamt sveppasoði og vatni. Kryddið með kjúklingateningunum og sérríi eða portvíni. Þykkið sósuna með hveitijafningi ( hveiti og vatni) eða sósujafnara. Hellið rjóma út í og hitið (sjóðið ekki). Gott er að bera fram með brúnuðum kartöflum og Waldorfssalati.