Kanilkalkúnn með sítrónukeim
4 bollar kalkúnakjöt skorið í u.þ.b. 2.5 sm þykka bita
6 msk olífuolía
3 miðlungsstórir laukar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2/3 bolli tómatamauk úr dós, látið vökvann leka af því
3 msk tómatpúrra
2 lengjur af ferskum kanil, brotnar í helminga
2 miðlungsstórar sítrónur, skornar niður með hýðinu á
1 ½ tsk oregano
1/8 tsk allrahanda
3 bollar kalkúnasoð (notið kalkúnakraft eða jafnvel kjúklingakraft)
½ bolli hveiti
salt og pipar eftir smekk
½ rifinn parmesan ostur
Setjið 3 msk af olífuolíunni í pott og látið laukinn malla þangað til hann verður léttbrúnn. Bætið hvítlauknum við og látið malla í mínútu í viðbót.
Lækkið hitann og bætið við tómötunum, tómatpúrrunni, kanil, sítrónunum, oregano og allrahanda. Látið malla á lágum hita í 5 mínútur. Bætið kalkúnasoðinu útí , látið lok á og látið malla við lagan hita í 75 mínútur.
Meðan sósan er að malla, hitið olífuolíuna sem er eftir (3 msk) á pönnu, hafið mikinn hita á pönnunni. Veltið kalkúnabitunum upp úr hveiti, hristið af það hveiti sem ekki loðir við og snöggsteikið þangað til kalkúninn er brúnaður, passið að ofelda hann
ekki.*
Takið af hitanum og setjið til hliðar.
Bætið kalkúninum í sósuna þegar hún er tilbúin og látið malla á loks í 15 mínútur.
Kryddið til eftir smekk.
Takið kanilstangirnar og sítrónubitana úr.
Berið fram með uppáhalds pastanu ykkar og dreifið parmesan yfir.
*ef kalkúnabitarnir eru ofsteiktir, vilja þeir trosna og fara í sundur þegar þeir eru settir saman við sósuna og búnir að malla.