Bitar - Kjúklingabitar í rommkryddlegi
2 kjúklingar eða ca. 2,2 kg bitar
4 msk. dökkt romm
Safi úr 2 lime-ávöxtum
3 vorlaukar
2 msk. sojasósa
3 hvítlauksrif
1 tsk. timjan
2 tsk. karrí
4 msk. dökkt romm
Safi úr 2 lime-ávöxtum
3 vorlaukar
2 msk. sojasósa
3 hvítlauksrif
1 tsk. timjan
2 tsk. karrí
Setjið kjúkling í ílát. Fínsaxið laukinn og skerið hvítlaukinn í bita.
Blandið saman rommi, lime-safa, sojasósu, lauk og hvítlauk. Kryddið með timijan og karríi. Hellið leginum yfir kjúklinginn og látið standa í ísskáp yfir nótt ( a.m.k. 12 klst.)
Forhitið ofninn í 175°C. Bakið kjúklinginn í 45 mínútur eða þar til rétturinn er fallega brúnaður. Snúið kjúklingnum nokkrum sinnum við meðan á steikingu stendur. Skreytið réttinn með lime-sneiðum og þurrkuðu timjan. Hrísgrjón eða bakaðar kartöflur eru góðar með þessum rétti.
