Bitar - Kjúklingur í ediki
1 stk. Kjúlli í 8 bitum.
Salt og ferskur, malaður pipar
50 gr smjör
100 gr skalotlaukur, fínt saxaður
150 ml vínedik
1 bouqet garni
100 ml þurrt hvítvín
150 ml kjúklingakraftur
25 gr smjör og 10 gr hveiti hrærð saman með gaffli
1 msk. steinselja
Kryddið kjúklinginn með salti og pipar. Hitið smjörið á pönnunni og
steikið bitana á öllum hliðum í 7-8 mín. eða þar til þeir eru
gullinbrúnir. Setjið skalotlaukinn út í og sjóðið í eina mínútu, hellið
þá vínedikinu út á pönnuna. Þá kemur bouquet garni og svo á að setja
lokið á pönnuna og sjóða við vægan hita í u.þ.b. 10 mín.
Takið kjúklingabitana af pönnunni, allt nema lærin sem þurfa að vera
í 5 mín í viðbót. Haldið hita á kjúklingnum á meðan sósan er búin til.
Hellið hvítvíninu út á sósuna og látið sjóða upp að einum þriðja. Bætið
síðan kjúklingakraftinum út í og síðan smjör- og hveitiblöndunni til
þess að þykkja sósuna. Ef hún verður of þykk má þynna hana með
kjúklingakrafti og vatni. Bragðbætið með kryddi.
Setjið kjúklinginn á djúpan disk og hellið heitri sósunni yfir. Skreytið með steinseljulaufum og berið fram undir eins.
