Bitar - Möndlu & furuhnetu kjúklingur í eldföstu móti
1 kjúklingur í bitum (8 bitar)
6 stk litlar kartöflur
2 stk vel þroskaðir tómatar
3 stk meðalstórir laukar
6 msk olívu olía
100 gr furuhnetur
100 gr möndlur
1 lítið glas hvítvín (má nota mysu)
safi úr hálfri sítrónu
2 stk hvítlauksrif
fersk steinselja
ferskt timian
pipar
1 stk kjúklingateningur (kjúklingakraftur)
salt
Nuddið botninn á eldföstu móti með hvítlauksrifi og setjið kjúklingabitana í mótið. Takið hýðið af tómötum og kartöflunum. Skerið í grófa bita ásamt lauknum og setjið í mótið með kjúklingnum.
Saxið hvítlaukinn smátt (ekki pressa hann) og stráið yfir kjúklingabitana ásamt steinseljunni og timian. Bætið svo við sítrónusafanum, furuhnetunum , möndlunum og kryddið með salti og pipar.
Leysið kjúklingateninginn upp í litlu glasi af vatni og hellið á kjúklinginn. Þar á eftir bætið þið við hvítvíninu og olíunni. Passið að hella vökvanum eins jafnt yfir og hægt er svo vökvinn blandist vel saman.
Setjið kjúklinginn í 180° heitan ofn og eldið í 1 og ½ klst. Takið úr ofninum og látið standa í 10 mínútur áður en borið er fram.