Valmynd

Bitar - Sítrónukjúklingur

800 g kjúklingabitar
3 sítrónur
2 msk ólífuolía
2 msk glært hunang
2 hvítlauksrif
4 stilkar ferskt rósmarín eða 2 tsk þurrkað
50 g svartar ólífur
2 1/2 boli hrísgrjón (jasmín eða hýðishrísgrjón)


Kreistið safa úr tveimur sítrónum í stóran pott og hitið. Bætið ólífuolíu og hunangi saman við. Saxið hvítlauksrifin og mýkið í pottinum ásamt rósmaríngreinunum.

Hitið ofninn í 200°c. Steikið kjúklingabitana í blöndunni og snúið þeim nokkrum sinnum.

Raðið bitunum að því loknu í eldfast mót. Skerið eina sítrónu í báta og raðið í fatið í kringum bitana ásamt ólífum. Bakið í 200°c heitum ofni í 45-50 mínútur. Ausið vökvanum af og til yfir réttinn á meðan hann bakast.

Berið fram með jasmín- eða hýðishrísgrjónum og fersku salati ásamt brauði.

Tilboð!!

Vefumsjón