Valmynd

Bitar - Tandoori - kjúklingur

Magnús Þorkelsson, kennslustjóri er með þessa

1 stk. kjúklingur í bitum ( ca. 1.5 kg).
Tandoori krydd frá Bart Spice eða Rajahsa
Hrein jógúrt (2 litlar dósir)
Sítrónusafi
Rauður og gulur matarlitur ef vill


Kjúklingnum skipt í að minnsta kosti fjóra hluta. Skinninu er flett af og kjúklingurinn þurrkaður. Hrært upp í jógurtinni og 2 msk. af Tandoori kryddi blandað saman við ef maður vill hafa bragðið milt en 3 msk. ef styrkurinn á að vera meiri.

Út í þetta eru jafnframt settar 2 msk. af sítrónusafa. Kryddlögurinn er borinn á kjúklinginn sem raðað er ofan í stórt fat þannig að bil sé á milli bitanna. Þetta er látið standa í tólf tíma en best er að það sé sólarhringur. Síðan ræðst það af árstíð og aðstæðum hvernig þetta er eldað. Notast má við gasgrill, kolagrill eða bakarofn.

Stykkjunum er raðað á plötu eða bökuð í fatinu og látin liggja þar svo lengi sem þarf, líklega 45 til 55 mínútur við 200°C hita. Snúið og kryddblandan borin á og loks sett undir grill í 5 mínútur í lokin. Sumar tandoori-blöndur eru rauðleitar og kjúklingar sem fást á veitingahúsum eru þannig. Ef Bart-blandan er notuð eða aðrar grænleitar blöndur er ágætt að setja smá matarlit í blönduna, gulan 1 tsk. og rauðan 1/2 tsk. til að fá réttan lit.

Tilboð!!

Vefumsjón