Valmynd

Blandað - Curry kjúklingasalat með jógúrt

150 - 200 gr afgangar af elduðum kjúklingi rifnir niður
1/2 stk gúrka skræld og skorin í hálfmána
1 stk harðsoðið egg
Handfylli af cherry tómötum (þessir litlu) skornir í tvennt
1 stk salathöfuð sem þér finnst gott
1/4 bolli möndlur
1/4 bolli hrein jógúrt
1 tsk Thai grænt curry paste (eða eftir smekk)
Smá salt
Smá niðurrifið ferskt engifer eftir smekk
Sítrónusafi eftir smekk
Ferskar dill greinar til skreytingar

Blandið saman curry paste, jógúrt og sítrónusafa og hrærið þangað til allt er blandað vel saman. Setjið öll efnin saman í skál og hellið sósunni yfir. Skreytið með dill greinunum.

Tilboð!!

Vefumsjón