Blandað - Karríkjúklingur
1.5 kg. kjúklingabitar
1-2 laukar & 2 hvítlauksgeirar
Smjör eða matarolía til steikingar
2 tsk. karrí
2 dl kjúklingasoð
1 kanilstöng
Eldpipar á hnífsoddi (cayenne)
1-1,5 dl rjómi
Sósujafnari
Brúnið kjúklinginn vel í smjörinu eða olíunni. Takið bitana upp úr. Saxið lauka og hvítlauksrif og mýkið á pönnunni. Kryddið með karríi.
Hellið nú kjúklingasoðinu saman við, setjið kanilstöngina út í og kryddið með eldpipar. Setjið kjúklingabitana aftur út í og látið réttinn krauma í 35-40 mínútur.
Takið kanilstöngina upp úr. Hreinsið kjötið frá beinunum og skerið í bita. Hellið rjómanum út í sósuna og þykkið með sósujafnara. Setjið kjötið aftur út í og hitið vel. Skreytið með bananasneiðum, paprikusneiðum og agúrkum. Stráið kókosmjöli yfir. Berið fram með hrísgrjónum.