Blandað - Ofnréttur úr afgöngum
Soðið kjúklingakjöt
1 lítill broccolihaus
Hálft franskbrauð
3 msk. sýrður rjómi
1 dós blaðlaukssmurostur
2 dl mjólk
3 bollar hrísgrjón
5 - 6 sveppir
Rifinn ostur
Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin. Á meðan að þau sjóða er hægt að skera niður sveppi og broccoli. Franskbrauðið má rífa niður í litla ferninga. Kjúklingakjötið, sem er best að hafa beinlaust, grænmetið og brauðið fer svo allt í eldfast mót sem að smurt er með sýrða rjómanum.
Mjólkin er hituð í potti og blaðlauksostinum bætt út í. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin má blanda þeim saman við kjúklinginn, brauðið og grænmetið og hella svo ostasósunni yfir.Rifna ostinum er svo stráð yfir og þetta sett inn í 180°C heitan ofn í 15-20 mínútur. Skreytið með söxuðum blaðlauk áður en borið er fram.
Þetta er ofsalega gott með fersku ávaxta- eða grænmetissalati.