Blandað - Thailenskur kjúklingur á hrísgrjónabeði
600 gr kjúklingur skorinn í strimla
3 msk sesam olía
1 msk saxaður hvítlaukur
2 stk paprika (ein rauð og ein græn)
1 laukur
10 stk sveppir
1 bolli niðurskorið broccoli
¼ bolli teriyaki sósa
1 msk sósujafnari /kartöflumjöl
3 msk hnetusósa
Hnetur (má sleppa)
Sjóðið 1 bolla af hrísgrjónum. Hitið steikarpönnu vel (wok pönnu ef þið eigið), setjið olíuna á heita pönnuna og passið að hún þekji botn pönnunar vel. Setjið hvítlaukinn og grænmetið á pönnuna , eldið í 2 mínútur og hrærið vel í á meðan.
Takið grænmetið af pönnunni eða ýtið því að köntunum og setjið kjúklinginn á miðja pönnuna. Eldið í 4 mínútur eða þangað til kjúklingastrimlarnir eru ljósbrúnir og eldaðir í gegn. Hrærið af og til í öllu meðan á steikingunni stendur.
Blandið saman teriyaki sósu og sósujafnara/kartöflumjöli í litla skál, hrærið í með gaffli þangað til efnin hafa blandast vel saman.
Hrærið saman við kjúklinginn og grænmetið á pönnunni ásamt hnetusósunni. Eldið í 2 - 3 mínútur til viðbótar, á þeim tíma þykknar sósan. Hrærið vel í á meðan.
Berið fram ofan á hrísgrjónunum og fersku grænmeti skornu í bita. Skreytið með hnetum.