Bringur- Kjúklingaréttur með pestó fyrir 4
Hráefni:
600 g kjúklingabringur
150 g grænt pestó (1 krukka)
150 g fetaostur
3 stk tómatar
Aðferð:
1. Leggið kjúklingabringurnar í eldfast mót.
2. Smyrjið pestóinu yfir.
3. Dreifið fetaostinum yfir (ekki nota olíuna í krukkunni).
4. Skerið tómatana í sneiðar og leggið yfir.
5. Eldið við 180°C í 40 mín.
