Bringur - Grillaðar kjúklingabringur á spjóti
400 g úrbeinaðar kjúklingabringur
4-5 ananashringir
2 bananar
1 rauð paprika
Kryddlögur
2 hvítlauksrif
2 tsk engiferrót
1 dl ananassafi
2 msk sojasósa
2 msk sérrí
1 msk sítrónusafi
1 tsk sinnep
2 msk ólífuolía
3 msk kryddedik
Merjið hvítlauksrifin, rífið engiferrótina og blandið saman við ananassafa,sérrí, sojasósu, sítrónusafa, sinnep, ólífuolíu og kryddedik.
Hamflettið kjúklingabringurnar og skerið í hæfilega bita. Hellið kryddleginum yfir bitana og látið bíða í kæli í 3-4 klst.skerið ananas, banana og papriku í bita og þræðið til skiptis upp á grillspjót ásamt kjúklingabitunum.
Penslið vel með kryddleginum. Grillið í 10-15 mínútur á heitu grilli.
Penslið með leginum á meðan og snúið nokkrum sinnum.
Berið fram á salatblöðum með hrísgrjónum sem blönduð eru með smávegis af villigrjónum ásamt brauði og sojasósu.