Bringur - Ítalíukjúklingur með skinku og osti
4 Kjúlla bringur, úrbeinaðar
4 þunnar skinkusneiðar
4 þunnar ostasneiðar
Fersk salvía, 4 blöð
Smjör eða matarolía til steikingar
Salt
Pipar
1 dl kjúklingasoð (vatn + teningur)
Takið skinn af kjúklingabringunum. Ristið með hnífi ofan í hverja bringu og búið til einskonar vasa. Setjið eina ostsneið, eina skinkusneið og eitt ferskt salvíublað í hvern vasa.
Þrýstið bringunni saman aftur og látið bíða í 30-40 mínútur. Hitið smjör/olíu á pönnu og steikið bringurnar vel í þrjár-fjórar mínútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar.
Hellið kjúklingasoðinu yfir réttinn og hitið augnablik. Soðin hrísgrjón og tómatasneiðar með sýrðum rjóma eru tilvalin með þessum rétti.