Valmynd

Bringur - Kjúklingabringur á núðlu- og ávaxtabeði

4 kjúklingabringur
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 sellerístöngull
1 gulrót
1 msk matarolía
1 1/2 dl kjúklingasoð
2 tsk sítrónusafi
2 msk hvítvín (eða mysa)
1 tsk nýmalaður pipar
1 tsk maizenamjöl
2 ferskjur
250g eggjanúðlur

Saxið lauk og merjið hvítlauk. Skerið sellerístöngulinn í bita og gulrótina í strimla. Hitið olíu á pönnu og steikið grænmetið í þrjár mínútur. Takið af pönnunni. Hamflettið bringurnar. Hitið olíu á pönnu og steikið bringurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru farnar að brúnast. Takið af pönnunni og blandið saman við grænmetið. Sjóðið saman kjúklingasoð, sítrónusafa, hvítvín/mysu og pipar ásamt maisenamjöli þar til þykknar. Hrærið vel í á meðan.

Setjið nú bringurnar ásamt grænmetinu aftur á pönnuna. Skerið ávexti í litla bita og raðið ofan á. Hellið sósunni yfir. Setjið lok eða álpappír yfir og hitið í 3-4 mínútur. Sjóðið eggjanúðlur skv. leiðbeiningum á pakka.

Tilboð!!

Vefumsjón