Bringur - Kjúklingabringur með bragðsterkri sósu
4 kjúklingabringur
1 laukur
3 hvítlauksrif
1/2 chilipipar (rauður)
1/2 dl jalapeno-pipar, niðursoðinn
40 gr ljósar rúsínur
1 tsk allrahanda
30 gr suðusúkkulaði
1 msk sesamfræ
1 msk olía
50 gr möndlur (afhýddar)
30 gr hnetusmjör
1 dós tómatkraftur (lítil)
2 1/2 dl kjúklingasoð
1 tsk nýmalaður pipar
2 msk ferskt kóríander
2 1/2 dl hrísgrjón
1 kúrbítur
Hitið grillið í ofninum.Merjið hvítlauk og saxið lauk. Fræhreinsið chilipipar og saxið smátt.Brjótið súkkulaðið í litla bita. Ristið sesamfræin á pönnu.
Grillið kjúklingabringurnar í heitum ofni í 20 - 30 mínútur.
Hitið Olíu á pönnu og mýkið lauk og hvítlauk á meðalhita. Bætið chilipipar og rúsínum saman við og steikið í 2 mínútur. Bætið möndlum og hnetusmjöri saman við og steikið áfram í 2 mínútur.
Setjið allt í matvinnsluvél og búið til mauk. Síðan er maukið aftur sett á pönnuna. Tómatkrafti og kjúklingasoði bætt saman við ásamt allrahanda.
Látið suðuna koma upp og leyfið sósunni að malla við lágan hita.
Bætið súkkulaðinu saman við sósuna, látið bráðna við vægan hita eða bræðið það í örbylgjuofni og blandið vel saman við sósuna. Dreifið sósunni yfir bringurnar með skeið. Stráið sesamfræjum yfir réttinn ásamt fersku kóríander.
Berið fram með hrísgrjónum og steiktum eða grilluðum kúrbítssneiðum.