Valmynd

Bringur - Mexikóskar kjúklingabringur

6 kjúklingabringur
1 dl sítrónusafi
2 msk ólífuolía til penslunar
2 msk ólífuolía
1 meðalstór laukur
1 dós niðursoðnir tómatar
2 msk möndlur
2 msk rúsínur
2 tsk kapers
5 grænar ólífur
1/2 msk niðursoðinn grænn pipar
1 rauð paprika 1/2 græn paprika
1/2 gul paprika
2 1/2 dl appelsínusafi
1 dl kjúklingasoð
1/2 tsk kanill
1 msk kóríander (ferskt)

Raðið kjúklingabringunum í eldfast mót og hellið sítrónusafa yfir.
Látið standa í ísskáp í 2 klst.

Penslið með ólífuoíu og bakið í 180 gráðu heitum ofni í 20 mín.

Hitið olíu í potti og mýkið smátt saxaðan laukinn. Bætið tómötum, rúsínum, kapers, ólífum og piparkornum út í. Látið suðuna koma upp.

Hreinsið og takið kjarna úr paprikum og skerið í strimla. Bætið út í ásamt appelsínusafa og kjötsoði og sjóðið í 15 mínútur. Bragðbætið með kanil.

Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið áfram í 20 mínútur í ofninum.
Skreytið með fersku kóríander og berið fram með hrísgrjónum og brauði.

Tilboð!!

Vefumsjón