Valmynd

Bringur - Parmesan kjúklingur með fljótlegri pastasósu

4 kjúklingabringur beinlausar og skinnlausar
½ bolli brauðrasp
¼ bolli rifinn parmesan ostur
½ tsk Italian seasoning í pakka
1/8 tsk svartur pipar
1/3 bolli hveiti
2 stórar eggjahvítur , slegnar aðeins saman
2 tsk olífuolía
4 bollar heitt soðið spaghetti
3 bollar Fljótleg og auðvelt pasta sósa, uppskrift neðar
1 bolli rifinn mozzarella ostur
Basilkum lauf (má sleppa)


Setjið hverja bringu inn í plastfilmu og rúllið yfir með kökukefli til að gera þær þynnri.

Blandið saman í grunnri skál brauðraspi, parmesan osti, ítalian seasoning og pipar. Dýfið hverri bringu fyrst í hveiti, síðan eggjahvítur og síðast í raspblönduna.

Hitið olíu á stórri tefflon pönnu við miðlungs háan hita. Bætið kjúklingnum á og steikið í 5 mínútur á hverri hlið, eða þangað til kjúklingurinn er tilbúinn.

Setjið 1 bolla af spaghetti í djúpa eldfasta diska , setjið ½ bolla af pastasósunni þar yfir. Setjið svo kjúkling ofan á allt saman. Setjið síðan ¼ bolla af pastasósunni ofan á og stráið ¼ bolla mozzarella yfir hvern disk. Setjið diskana á bökunarplötu og skellið í ofn í 3 mínútur eða þangað til osturinn er bráðnaður. Skreytið með basilkum laufunum og berið fram með hvítlauksbrauði.

Fljótleg og auðveld pastasósa
1 tsk olífuolía
1 bolli saxaður laukur
4 hvítlauksgeirar, pressaðir
½ bolli þurrt rauðvín eða 2 msk balsam edik
1 msk sykur
1 msk saxað ferskt basilkum eða 2 msk af þurru
2 msk tómatpúrra


Blandið öllu saman í skál og hrærið vel

Tilboð!!

Vefumsjón