Bringur - Tandoori kjúklingur með mintusósu
6 kjúklingabringur
2 1/2 dl jógúrt (án ávaxta)
1/2 dl hvítvínsedik
1 1/2 msk kúmínduft
1 msk rautt chiliduft
1 msk garam masala
1 tsk natríumskert salt
2 msk svartur pipar (fínn)
4 hvítlauksgeirar
1 msk engiferrót
1/2 dl olía
350 g hrísgrjón
1 kjúklingateningur
Mintusósa
1/2 lítri jógúrt
4 msk minta (fersk)
1 sítróna (safi)
1/2 tsk natríumskert salt
1 tsk nýmalaður pipar
Búið til lög úr jógúrt, hvítvínsediki, olíu og kryddi.Merjið hvítlauk,
rífið engiferrót og bætið út í. Leggið skinnlausar kjúklingabringurnar
í löginn og látið marineerast á a.m.k 4 klukkutíma. Takið bringurnar
úr marineringunni og bakið í eldföstu móti í 200 C° heitum ofni í 20 mín.
Mintusósa
Látið jógúrt drjúpa í gegnum kaffifilterpoka í 1 klukkutíma.
Saxið mintuna smátt og bætið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél. Geymið í kæli í a.m.k 3 klukkutíma.
Berið fram með hrísgrjónum soðnum í kjúklingakrafti og krydduð með fersku kóríander ásamt salati með rauðlauk og sósu úr ólífuolíu og balsamediki.