Valmynd

Bringur - grillaðar bringur í snittubrauði

4 hamflettar kjúklingabringur (600 g)
Kryddlögur
1/2 dl ólífuolía
3 msk ananassafi (ósykraður)
1 msk engiferrót (rifin)
1 msk sojasósa
1 tsk rósmarín (þurrkað)
1 tsk nýmalaður pipar


1 gróft snittubrauð
1 salathöfuð
1 rauðlaukur
rauð og gul paprika
6 msk chillisósa


Hrærið saman það sem þarf í kryddlöginn. Raðið bringunum á fat og hellið kryddleginum yfir. Gott er að láta þær liggja þar í 2-3 klst. Snúið þeim nokkrum sinnum á meðan.

Grillið bringurnar hvorum megin á heitu grilli.
Skerið rauf í brauðið og skerið síðan í fernt. Rífið salatið, skerið rauðlauk í hringi og setjið hvort tveggja ofan í raufarnar. Leggið bringurnar ofan á og skreytið með papriku.

Berið fram með chilisósu.

Tilboð!!

Vefumsjón