Hakk- kjúklinga-lasagne
Kjúklinga Lasagne, fyrir 8-10
- 225 gr. Lasagne plötur (mega vera grænar)
- ca 400 gr rifinn Mozzarella ostur
- 125 gr (1-1,5 dl) rifinn Parmesan ostur
- 3 matskeiðar smjör eða olía
- 120 gr sveppir í sneiðum (má vera úr dós)
- ½ bolli saxaður laukur (einn stór)
- 2 dósir rjóma sveppasúpa
- 1,5dl mjólk
- 250gr kjúklingahakk
- 400gr kotasæla
Sjóðið lasagne plöturnar. Blandið saman rifna ostinum og setjið til hliðar. Setji smjörið eða olíuna á pönnu og steikið sveppina og laukinn, bætið kjúklingahakkinu á pönnuna og látið krauma.
Setið í skál sveppasúpuna, mjólkina og kotasæluna og blandið saman bætið þessu svo á pönnuna og hrærið saman. Smyrjið eldfast fat (stærð ca 23x33 sm.) setjið eitt lag af lasagne plötum í fatið hyljið með 1/3 af sveppablöndunni síðan með 1/3 ostablöndunni og endurtakið tvisvar í lokin, setið þykkt lag af osti yfir allt saman. Bakið í 45 mínútur við 160-180 ºC. Frysta má svo afganginn og nota síðar.
