Hakk - kjúklinga-lasagne með rjómaosti.
Kjúklinga Lasagne, fyrir allt að 10 manns
- 225 gr. Lasagne plötur (mega vera grænar)
- 125gr saxaður laukur (einn stór)
- 125 gr söxuð græn paprika
- 3 matskeiðar smjör eða olía
- 1 dós (225) kjúklingasúpa (rjóma)
- 1 dós (225gr) sveppir í sneiðum án vökva,
- 1-1,5 dl mjólk
- 400-500gr eldað/steikt kjúklingahakk
- 450 gr kotasæla
- 450 gr rjómaostur
- 125 gr rifin Parmesan ostur
Sjóðið lasagne plöturnar. Steikið laukinn og paprikuna í smjöri þar til þetta er orðið meyrt, hrærið saman súpuna, sveppina og mjólkina setið helminginn af lasagne plötunum í eldfast fat (ca 23x33 sm) setið helminginn af öllu ofan á plöturnar og endurtakið en án ostana (rjómaostsins og Parmesanostsins)
Hyljið eldfasta fatið með td álpappír eða loki og bakið í 45 mínútur við 175 ºC Setið restina af ostinum sem skilin var eftir, yfir og bakið í 2-3 mín í viðbót í opnu fatinu.
