Valmynd

Heill - Hátíðasalat með aprikósusósu

1 búnt salat (td. Lambhaga eða arugula salat)
1 greipaldin (rautt)
400 g soðið kjuklinga, eða kalkúnakjöt
1/2 dós niðursoðnar apríkósur

Sósa
1 dós sýrður rjómi (10%)
1 apríkósa ásamt smávegis safa
1 tsk nýmalaður pipar
1/2 tsk natríumskert salt
2 msk apríkósusulta

Rífið salatið niður. Afhýðið greipaldin og skerið í bita.
Skerið kjötið og apríkósur í strimla (ath. haldið einni apríkósu eftir til að nota í sósuna)

Sósan
Blandið smátt saxaðri apríkósu, safa og apríkósusultu út í hrærðan sýrða rjómann. Kryddið með salti og pipar og berið fram sér með salatinu.

Berið fram með grófu brauði.

Tilboð!!

Vefumsjón