Valmynd

Heill - Indverskur kjúklingaréttur

1.5 kg kjúklingur
1/2 tsk salt
1 tsk chiliduft
1/2 tsk kardimommuduft
1 tsk negulduft
1 tsk kanill
1 tsk kúmínduft (cumin)
125 g þurrkaðar apríkósur
1 msk matarolía
1 stór laukur
2 hvítlauksrif
1 msk engifer (ferskt)
1 tómatur (stór)
1 tsk vínedik
25 g möndlur
25 g rúsínur
1 grænn chilipipar(ferskur)

Skerið kjúklinginn í bita og hamflettið(Ísfugl selur kjúklinga líka í bitum).
Blandið salati og öllu þurrkryddi saman, nuddið í kjúklingabitana og látið bíða í ísskáp í a.m.k klukkutíma.

Sjóðið apríkósurnar í örlitlu vatni þar til þær eru orðnar mjúkar, a.m.k 5 mínútur.

Hitið olíuna á stórri pönnu. skerið laukinn í þunnar sneiðar (hringi) og mýkið í olíunni, rífið engifer og saxið hvítlauk og bætið út í.

Bætið kjúklingbitunum út á pönnuna. Saxið tómata og bætið þeim við ásamt vínediki og örlitlu vatni. Látið réttinn malla undir loki í 30 mín. Eða þar til kjötið er orðið meyrt.

Afhýðið og saxið möndlurnar og ristið á þurri pönnu og bætið rúsínum samanvið í augnablik. Hellið nú niðurskornum apríkósum, möndlum og rúsínum yfir réttinn. Skolið og fjarlægið kjarnann úr græna chilipiparnum og saxið yfir réttinn.

Berið fram með hrísgrjónum

Tilboð!!

Vefumsjón