Valmynd

Heill - Kjúklingaréttur Campbella

1 kjúklingur
1 dós Campbell´s Cream Chicken Soup
U.þ.b. 2 tsk. karry
Kjúklingakrydd
1/2 dl rjómi
Örlítið af sýrðum rjóma
Rifinn ostur


Kjúklingurinn er kryddaður lítillega með kjúklingakryddi og grillaður. Síðan er súpan þynnt með rjóma þannig að úr verður sósa. Hún er krydduð með karrýi og svolitlu kjúklingakryddi og sýrða rjómanum blandað saman við.

Kjötið er skorið af kjúklingnum sett saman við sósuna og allt sett í smurt eldfast mót. Rifnum osti er stráð yfir og bakað við 180 gráður í um 20 mínútur eða þar til að osturinn er vel bráðinn.

Með þessum rétti er gott að bera fram hrísgrjón, salat og brauð.

Þessi er frá tengdarmömmu Margrétar Stefánsdóttur söngkonu. "Dæmigerður mömmumatur"

Tilboð!!

Vefumsjón