Valmynd

Heill - Kjúklingasúpa með kjötbollum

1 kjúklingur ca. 1,2 kg
1 tsk. salt
3-4 heil hvít piparkorn
1-2 stilkar sítrónutimían
3 eggjarauður
safi úr 1/2 sítrónu
1 dl þeyttur rjómi


Kjötbollurnar

bringan af kjúklingnum
1 tsk. salt
1 korn hvítur pipar
1 egg
3-4 msk. þeyttur rjómi


Skerið bringurnar og lærin frá. Lærin notast bara síðar. Hreinsið kjötið af beinunum og setjið þau í pott. Látið suðuna koma upp og fjarlægið froðuna. Kryddið og látið soðið malla undir loki í u.þ.b. 45 mín. Í stað sítrónutimíans má nota 1 tsk. af rifnum sítrónuberki og 1/2 tsk. þurrkað timían.

Búið til bollurnar á meðan krafturinn sýður. Takið skinnið af bringunum. Hakkið kjötið með salti og pipar og hrærið eggjarauðunum og þeytta rjómanum útí. Myndið bollur með teskeið og sjóðið í léttsöltuðu vatni í 5 mín.

Sigtið kjötkraftinn og látið sjóða. Hrærið eggjarauðunni, sítrónusafanaum og rjómanum út í kjúklingakraftinn. Súpan má ekki sjóða eftir að búið er að hræra egginu út í því þá skilur hún sig. Berið súpuna fram með kjötbollunum, þunnum gulrótastrimlum og rifnum sítrónuberki.

Tilboð!!

Vefumsjón