Heill - Sítrónukjúklingur með kryddsósu
1 stór Kjúlli skorinn í bita.
2 sítrónur
Frönsk kryddblanda (Provencale)
matarolía eða smjör til steikingar
4 lárviðarlauf
1 kjúklingateningur
4 dl vatn
Salt og pipar
Sósujafnari
Örlítill sykur
Kreistið safa úr einni sítrónu og hellið yfir kjúklingabitana, nuddið safanum inn. Kryddið með franskri kryddblöndu og látið bíða í 15 - 20 mínútur.
Þerrið kjúklingbitana og brúnið í potti í matarolíu eða smjöri. Setjið lárviðarlauf og einn kjúklingatening út í ásamt vatninu. Sjóðið réttinn í klukkutíma eða þar til að kjötið er meyrt.
Sneiðið eina sítrónu og bætið tveimur til þremur sneiðum út í réttinn síðustu mínúturnar. Kryddið með salti og pipar.
Takið kjúklinabitana upp úr pottinum og jafnið soðið með sósujafnara. Bragðbætið með sítrónusafa, örlitlum sykri og franskri kryddblöndu. Gott er að bera réttinn fram með hrísgrjónum og brauði.