Valmynd

Úrbeinuð kjúklingalæri í saltkexmulningi

Fyrir fjóra

  • 10 úrbeinuð kjúklingalæri með skinni (lítið mál að úrbeina, má nota bringur með skinni)
  • ½ pakki saltkex, mulið (td Ritz)
  • Kjúklingakrydd (td. Pottagaldrar)
  • Lambakjötskrydd  frá Pottagöldrum
  • Graslaukur ferskur eða þurrkaður (chive leaves)
  • Ljós sósujafnari

 

Setið kexmulninginn í stóra skál og tvær fullar teskeiðar af hverju kryddi fyrir sig, blandið vel saman,(oft er óþarfi að dýfa kjötinu í eggjahræru, en gerið það ef þarf til að mylsnan loði við kjötið). Setjið lærin (eða bringurnar) saman við og veltið kjötinu vel upp úr mylsnunni. Steikið kjötið á pönnu og færið yfir í pott (feitin fer líka í pottinn) og sjóðið í litlu vatni (rétt láta fljóta yfir) í svona 25-30 mínútur. Stráið sósujafnara í pottinn og þykkið soðið ef þarf.

Borið fram með kartöflum og hrásalati og eða kartöflusalati.

Tilboð!!

Vefumsjón