Valmynd

Vængir - BBQ-vængir með sesam- og gráðaostssósu

20 kjúklingavængir
2-3 tsk. BBQ-krydd
1 dl góð BBQ-sósa
2 msk. sesamfræ

Gráðaostssósa
1 dós sýrður rjómi (18%)
1-2 msk. gráðaostur
nýmalaður, hvítur pipar

Kryddið vængina með BBQkryddi.
Hitið ofninn í 180°C og bakið vængina í 20 mín. Penslið vængina þá með BBQ-sósunni og dreifið sesamfræjum yfir þá. Bakið
í 5 mínútur til viðbótar og berið fram með sósunni.

Gráðaostssósan
Þeytið sýrða rjómann og gráðaostinn vel saman og kryddið með pipar eftir smekk.

Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson,uppskrift er úr Gestgjafanum

Tilboð!!

Vefumsjón