Valmynd

Vængir - Bombay kjúklingavængir með jógúrt ídýfu

24 stk kjúklingavængir
1 tsk karrý
½ tsk turmerik
2 msk soja sósa
2 msk matarolía
2 hvítlauksrif, söxuð
1/8 tsk svartur pipar
Steinselja til skreytingar

Blandið saman í stórri skál öllu nema kjúklingavængjunum. Þegar lögurinn er tilbúinn bætið kjúklingnum útí. Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskápnum í u.þ.b. 1 klst.

Hitið ofninn í 165° Látið leka af vængjunum og raðið í ofnskúffu eða í eldfast mót. Eldið í 25 mín, eða þangað til þeir eru gullbrúnir.

Raðið vængjunum á stóran disk með skálina af jógúrt sósunni í miðjunni og skreytið með steinseljunni.

Jógúrt ídýfa
½ bolli hrein jógúrt
3 msk mangó, smátt skorinn
1 msk steinselja, söxuð
1 lítill laukur, smátt skorinn
¼ tsk Tabasco (má sleppa)
1/8 tsk salt


Blandið öllu saman í skál. Geymið sósuna í ísskápnum þangað til kjúklingurinn er borinn fram.

Tilboð!!

Vefumsjón