Valmynd

Vængir - Hunangsvængir með sítrónusafa

16 stk kjúklingavængir
1 ½ tsk gróft salt
125 gr. sítrónu safi
1 - 2 stk hvítlauksrif pressuð
90 gr hunang


Hitið ofnið í 200° Setjið vængina í eldfast mót og stráið saltinu yfir.
Eldið í 30 mínútur.
Hrærið saman hvítlauknum, sítrónusafanum og hunanginu þar til það hefur blandast vel saman. Hellið blöndunni yfir vængina og eldið í 20 mínútur í viðbót.
Gott er að nota sítrónugras til skreytingar.

Tilboð!!

Vefumsjón